GLAMÚR FYRIR ÍSLAND

Óskalisti
No products have been added yet.
Become a KARE Franchiser

Dear customer, if you are a business owner interested in our franchise business please follow the link below.

Visit B2B Website

Fyrirtækjaþjónusta

KARE FYRIR FYRIRTÆKI OG FAGFÓLK

Sérþekking Kare á sviði verkefnatengdra innréttinga felst í skipulagningu, hönnun og uppsetningu innréttinga í atvinnuhúsnæði. Hvort sem um ræðir vinnuumhverfi á borð við skrifstofur, hótel og orlofsíbúðir eða innréttingar fyrir veitingastaði og bari, bjóðum við heildstæðar lausnir á öllum stigum verkefnisins. Við leggjum áherslu á framúrskarandi hönnun og skapandi, nýstárlegar lausnir sem endurspegla nútímalegan lífsstíl.

Velkomin til Kare – fyrir fagfólk

Hvort sem þú ert að leita eftir stíl sem er tímalaus og glæsilegur, hreinn og einfaldur, nútímalegur, glansandi, litríkur eða náttúrulegur, vintage-útlit eða nútímalegan retróstíl þá býður KARE upp á einstaka og auðþekkjanlega fjölbreytni í öllum þessum stílum. Við finnum jafnframt réttu útfærsluna fyrir þinn eigin persónulega stíl, svo þú getir skapað gestum og viðskiptavinum einstaka upplifun og notalegt andrúmsloft.

Hjá okkur finnur þú húsgögn, lýsingu og fylgihluti, þar á meðal áberandi og eftirminnilega hönnunarhluti sem gefa fyrirtækinu þínu sérstakan og einstakan svip. Með metnaðarfullum og óhefðbundnum lausnum skapar þú með okkur skýra sérstöðu á markaði og styrkir tekjumöguleika til framtíðar.

KOSTIRNIR VIÐ AÐ VELJA OKKUR SEM SAMSTARFSAÐILA

Sérþekking

Yfir 40 ára reynsla og öflugt alþjóðlegt tengslanet vörumerkja og samstarfsaðila

Eftirsótt lífstílsvörumerki

Vinsælt lífsstílsvörumerki með yfir 5.000 vörur í 10 ólíkum trendlínunum sem veita hámarks sveigjanleika og fjölbreytta möguleika til persónulegrar hönnunar

Heildarþjónusta

Við fylgjum verkefninu eftir á öllum stigum, frá ráðgjöf og 3D-hönnun til framkvæmdar og faglegrar uppsetningar

Í nýja fyrirtækjabæklingnum okkar kynnum við nýjustu verkefnin okkar ásamt vandlega völdum vörum sem eru sérsniðnar að þörfum verkefnatengdra innréttinga.

Kynntu þér fyrirtækjabæklinginn

SEGÐU OKKUR HVERSKONAR FYRIRTÆKI EÐA RÝMI ÞÚ VILT INNRÉTTA

SKRIFSTOFA

HÓTEL

VEITINGASTAÐUR / BAR

ORLOFSHÚS / ÍBÚÐ

VERSLUNARRÝMI

FASTEIGN

NÝJUSTU VERKEFNIN

 HOTEL NAUTIMAR 

Hótel Nautimar er staðsett í Büsum við norðurströnd Þýskalands. Með 39 glæsilegum svítum býður Nautimar upp á fyrsta flokks þægindi og einstaka KARE-upplifun í notalegu og heillandi umhverfi.

THE ULLSTEIN HALL

Ullstein hall í Berlín – verkefni unnið í samstarfi við Dr. Katju Kessler, Berlín

Credits: Interior-Design www.KatjaKesslerKreation.de; #Ullsteinhalle #SBIDAward Fotograf: Dario J. Lagana

CATALUNA RESTAURANT

KARE stíll í hámarki í Jacksonville, Flórída!
Við kynnum með stolti nýjasta verkefni KARE Miami; veitingastaðinn Cataluna.

SENDU OKKUR FYRIRSPURN, VIÐ MUNUM SVARA EINS FLJÓTT OG MÖGULEGT ER

Fyrirspurn um verkefnatengd viðskipti

Nafn
Fyrirtæki
Netfang